Orkupakki 3 Falsfréttir eða falsreikningar.

Á forsíðu Bændablaðsins 23 ágúst 2018 byrtast þær upplýsingar að 89% af raforku á íslandi sé framleidd með kjarnorku,kolum,olíu og gasi og vitnað í Orkustofnun. Við nánari skoðun kemur í ljós að nýútrásarvíkingar hafa náð að selja og skiftast á raforku þráðlaust við evrópska framleiðendur.   Þegar Jón Sólnes sem var forsvarsmaður Kröfluvirkjunar þurfti að kljást við vetrarsálinar sem vakna í hvert sinn sem eitthvað mannlegt er framkvæmt og héldu því fram að ekki væri þörf eða möguleiki á því að nýta orkuna, þá fékk hann þau ráð,að mögulegt yrði í framtíðinna að leystum tæknivandamálum .Það mætti spegla orkun með himinspeglum til evrópu.  Nú hefur okkar mönnum tekist þetta afrek með fulltingi ESB skrifræðis án himin-spegils. Að vísu hefur verið leitað í smiðju umboðsmanns himnaföður, páfagarðs sem hefur vottaða reynslu í útgáfu aflátsbréfa með góðri arðsemi. Nú er hafin ný útgáfa aflátsbréfa gegnum reglugerðarkerfi ESB. Eru þetta græn upprunavottorð sem staðfesta hreinleika og uppruna orku sem handhafar bréfanna selja,væntanlega á hærra verði en óhreinu orkuna. Kristur tók á sig syndir mannanna til að þeir öðluðust náð himnaföður. Íslensk orkufyritæki taka á sig mengun erlenra orkusóða svo þeir hljóti náð ESB.og Parisar-samkomulagsins. Verðugt framlag Íslands til að draga úr mengun í veröldinni.  Hvenær neytendur í evrópu uppgötva að þeir eru að greiða fyrir skrifræðisblekkingar er seinnitíma vandamál.Vonandi heimta þeir ekki endugreiðslu því þá lendum við í ICEsave 2.

Í þessari stöðu sést að draumasæstrengur Landsvirkjunar þarflaus.

Nú er bara að drífa í því að koma upp Holtavirkjun,Urriðafoss og

Hvalár og Reykjanesvirkjunum. Verið er að selja uppsett afl og allar lagnir óþafar Landvernd til gleði.   Orkupakki 3 er úreltur,við erum þegar í orkupakka 4 þráðlaus orka  4.iðnbyltingin.!!!!!   


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Leyfði mér að deila þessu á FB - frábær pistill, ekki síst skýringin á þráðlausu orkunni   :)

Kolbrún Hilmars, 17.11.2018 kl. 14:49

2 Smámynd: Júlíus Valsson

Ef aðdáendur 3. orkupakka ESB fá sínu framgengt, sem er að afsala sér fullveldi þjóðarinnar í orkumálum til ESB, þá mun Landsvirkjun verða skipt upp og breytist við það í hinn argasta Medúsahaus með óteljandi orkuorma út úr hárinu og ofan í hverja þá lækjarsprænu landsins, sem möguleiki er á að virkja, því virkjað verður grimmt. Hin nýja Medúsa mun blása á sér hárið með roki frá óteljandi vindmyllum frá vindmylluverum um allt land. 

Júlíus Valsson, 17.11.2018 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar L Benediktsson

Höfundur

Einar L Benediktsson
Einar L Benediktsson
Ellilífeyrisþegi. Les íslensku

Færsluflokkar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband